Stórglæsilegt kafaraúr með svartri skífu og svörtum kafarahring. Úrið er með 50 metra vatnsvörn, sjálfvinduúrverki og þykku og sterku rispufríu kúptu safírgleri.
Ef þú villt bæta skemmtilegu og öðruvísi úri í úrasafnið þitt, þá eru Briston úrin eitthvað fyrir þig. Briston úrin eru frumleg og glæsileg úr og er notast við náttúrulegar trefjar (e. acetate) í flesta úrkassana hjá þeim (sömu náttúrulegu trefjar og er oft notast við í gerð vandaðra gleraugnaramma). Það má lesa betur um þessar trefjar hér neðar í umfjöllun um Briston úramerkið. Við erum með úrval af Briston leður- og nato ólum og stálkeðjum og er hægt að leika sér með litasamsetningarnar og útlitið á úrunum þeirra.
Efni úrkassa: Stál (316L), svart pvd í kafarahring
Ól: 20mm stálkeðja
Gler: Rispufrítt safírgler (3.15mm þykkt)
Stærð úrkassa: Um 39mm
Þykkt úrkassa: Um 12.9mm
Vatnsvörn: 5ATM (50 metrar)
Úrverk: Sjálfvinduúrverk (Miyota 82S5) með 42 klukkustunda hleðslu (e. power reserve)
Annað: Niðurskrúfuð króna fyrir aukna vatnsvörn og lume í vísum, klukkustundamerkjum og kafarahring sem getur lýst í myrkri
Ábyrgð: 2 ár
Askja: Merkt Briston
Briston er franskt úramerki og má rekja sögu Briston til ársins 2012 þegar Brice Jaunet nýtti margra ára reynslu sína og innsæi í úrabransanum til að hefja að framleiða eigin úr. Hann lagði upp með að leggja áherslu á góð gæði, góð verð og frumlegt og framandi útlit. Stofnandi Briston, Brice Jaunet hefur eins og fyrr segir gífurlega mikla reynslu í úrabransanum og hefur í gegnum tíðina unnið fyrir merki eins og Cartier, Baume & Mercier, Raymond Weil og Zenith. Briston notast oftast við náttúrulegar trefjar (e. acetate) sem er efni unnið úr plöntum sem er svo náttúrulega þurrkað í 2-3 ár og síðan skorið í smærri einingar. Þessu er síðan blandað saman í fallegri litaflóru og brætt í sitt einstaka útlit. Þessar náttúrulegu trefjar (e. acetate) hafa ekki nein skaðleg áhrif á húð manna og eru því oft notaðar til dæmis í gleraugu. Efnið er sterkt og endingargott og er hægt að pússa upp komi rispur í það.