Fallegt dömuúr með hvítri skífu, 100 metra vatnsvörn, og þykku og sterku extra rispuvörðu k1 gleri. Briston eru mjög frumleg og áhugaverð úr. Tilvalin úr fyrir þann sem vill bæta öðruvísi úri í sitt úrasafn!
Náttúrulegar trefjar (e. acetate) eru notaðar í flesta úrkassana hjá Briston (sömu náttúrulegu trefjar og eru oft notast við í gerð gleraugna). Það má lesa betur um þessar trefjar hér neðar í umfjöllun um Briston úramerkið. Við erum með úrval af Briston leður- og nato ólum og stálkeðjum og er hægt að leika sér með litasamsetningarnar og útlitið á úrunum þeirra.
Efni úrkassa: Stál, rósagyllt pvd og náttúrulegar trefjar (e. tortoise shell acetate)
Ól: 18mm suede leðuról.
Gler: Extra rispuvarið K1 gler (2.5mm þykkt)
Stærð úrkassa: Um 37mm
Þykkt úrkassa: Um 9.2mm
Vatnsvörn: 10ATM (100 metrar)
Úrverk: Rafhlaða (Miyota GL20)
Ábyrgð: 2 ár
Askja: Merkt Briston
Briston er franskt úramerki og má rekja sögu Briston til ársins 2012 þegar Brice Jaunet nýtti margra ára reynslu sína og innsæi í úrabransanum til að hefja að framleiða eigin úr. Hann lagði upp með að leggja áherslu á góð gæði, góð verð og frumlegt og framandi útlit. Stofnandi Briston, Brice Jaunet hefur eins og fyrr segir gífurlega mikla reynslu í úrabransanum og hefur í gegnum tíðina unnið fyrir merki eins og Cartier, Baume & Mercier, Raymond Weil og Zenith. Briston notast oftast við náttúrulegar trefjar (e. acetate) í úrunum sínum sem er efni unnið úr plöntum sem er svo náttúrulega þurrkað í 2-3 ár og síðan skorið í smærri einingar. Þessu er síðan blandað saman í fallegri litaflóru og brætt í sitt einstaka útlit. Þessar náttúrulegu trefjar (e. acetate) hafa ekki nein skaðleg áhrif á húð manna og eru því oft notaðar til dæmis í gleraugu. Efnið er sterkt og endingargott og er hægt að pússa upp komi rispur í það.